18apríl
Það er ekki annað hægt en að bera virðingu fyrir
svona fólki.
Annars unnu stelpurnar Snæfell í gær og urðu þar með Íslandsmeistarar í 2. deild kvenna. Það var kátt á hjalla.
Gekk upp á Úlfarsfell á sunnudagskvöldið, fór í gönguferð fyrir ofan Reynisvatn í gær og í dag vorum við í tvo eða tvo og hálfan tíma á Geldingarnesinu á röltinu. Maður verður að þjálfa gönguskóna fyrir ferðina í vor.
04apríl
Jæja, ég átti afmæli í gær, bara orðin 23 ára. Þegar ég var sex ára þá voru krakkarnir í 10. bekk fullorðna fólkið, nú eru krakkarnir í 10. bekk bara krakkar eða kannski unglingar. Mér fannst mamma og pabbi líka rosalega gömul þegar þau áttu mig þar sem að ég var þeirra fyrsta barn, þau voru 24 ára....ég er ekki lengur á þeirri skoðun. En já, þetta er svo sem ekkert slæmt, hef a.m.k. ekki fundið fyrir því enn þá.
En já, ég mætti í skólann í gærmorgun og mættu ekki yndin þær Silla og Anna Stella með afmæliskökur fyrir mig. Um 11 leytið var því sest að snæðingi en þar sem að við vorum bara fjögur mætt úr jarðfræðinni á þeim tímapunkti var ákveðið að borða afganginn af kökunum eftir prófið sem var seinna um daginn. Gaman að halda upp á afmælið í Öskju :) Fékk áttavita frá Helgu og hraunreipi frá Önnu Stellu, gæti ekki verið ánægðari með afmælisgjafirnar. Svo ætla mamma og pabbi að gefa mér eitthvað sætt, ég á bara eftir að ákveða það. Annars er ég komin í sveitina og þess vegna get ég bloggað :)
Vinna í fyrramálið, þarf að fara að sofa, góða nótt.

08mars
Jæja, sveitin....aftur. Búin að tengja DVD spilarann fyrir mömmu, hún var orðin leið á því að geta ekki horft á DVD :) Annars var hún í heimsókn hjá okkur systrum í seinustu viku, við vorum að kenna henni að horfa á Skjá einum því þau eru komin með Digital Ísland í sveitinni og ná nú loksins Skjá einum og Sirkus o.fl. En já, síðan í gær þá komst ég að því að hún hafði ekkert lært hjá okkur því hún vissi hvorki hvað Britain's Next Top Model eða Jericho var....held að hún verði bara að koma aftur í þjálfun til okkar.
Það er búið að vera kveikt á sjónvarpinu í allan dag á meðan ég var að læra þannig að ég er búin að sjá nokkra fréttatíma á hinum ýmsu stöðvum og ég er sko búin að heyra nokkrum sinnum að 90% fæðingarorlofs íslenskra feðra sé nýtt og að þetta hlutfall sé mun hærra heldur en það er á hinum Norðurlöndunum. Aumingja Magnús Stefánsson að fá ekki að finna fyrir smá slappleika án þess að það sé blásið upp í öllum fjölmiðlum landsins. Í fréttum var þetta helst; Magnús Stefánsson fékk aðsvif.....
Svo var ég að spá í umræðurnar í sambandi við launamismuninn og að laun starfsmanna eiga að vera opinber. Ég er ekkert svo viss um að ég myndi vilja að allir vissu hvað ég fengi í laun, hvort sem að launin mín væru 100.000 á mánuði eða 1.000.000 á mánuði. Það hlítur að vera brot á persónuvernarlögum....en anyways, ég er svo sem ekkert að vinna neitt mikið þessa dagana.
28janúar
Ég er heima í sveitinni, það var þorrablót í Víðigerði í gær og ég var að hjálpa mömmu og ömmu með matinn. Svo á ég að vera að gera pre-lab í efnafræði en já...það gengur svona ljómandi vel.
Á föstudaginn ákvað ég að kíkja aðeins upp í skáp inni í herbergi hjá mér til að reyna að finna bæklinginn sem fylgdi með vasareikninum mínu en að sjálsögðu fann ég ekki rétta bæklinginn heldur bara bæklingana frá hinum tveimur vasareiknunum mínum (hver þarf svo sem að eiga þrjá vasareikna) og svo fann ég líka nótnabók (tónlist) sem mamma og pabbi gáfu mér þegar þau komu frá Þýskalandi árið 2001. Ég hafði týnt bókinni sumarið eftir og var oft búin að leita að henni en mamma hafði verið að taka til frammi í forstofu (þeirri sem við notum aldrei) fyrir jólin og ákveðið að setja bókina upp í skáp hjá mér því hún ætti sennilega betur heima þar. Þess vegna er ég búin að vera í svolitlu flashbacki um helgina - flash back til vorsins 2001.... :)
Vorið 2001 þá var ég heima í sveitinni að vinna og í fjarnámi frá VMA. Ég var að læra lyfjafræði, efnafræði, líffræði, þýsku og félagsfræði. Ella frænka var líka að vinna hérna, Svanhildur og einhverjir fleiri sem ég man ekki hverjir eru. Svo var Ella líka í fjarnáminu. Hún var nýkomin frá Kanada þar sem hún var au-pair og átti þess vegna geisladisk með einhverjum vinsælum lögum í Kanada veturinn áður. Þess vegna fór ég að hlusta á Graduation (Friends Forever) með Vitamin C. Það var eitt af uppáhaldslögunum mínum úr nótnabókinni góðu sem ég "fann" núna á föstudaginn. En lagið hvarf þegar að ég skilaði geisladisknum til Ellu og ég hef ekki heyrt það síðan...þangað til í dag þegar ég fór inn á radioblogclub.com og hlustaði á þetta lag sem hefur lifað í minningunni sem eitt það besta lag sem ég hef heyrt.....vonbrigðin voru þó nokkur. Hvet ykkur samt eindregið til að hlusta á lagið.
22desember
Já, nú er loksins kominn desember hjá mér og ég verð að vinna upp 21 dag á tveimur dögum til að ná upp jólastemmningunni. Hefur gengið alveg ótrúlega vel að útiloka flest það sem við kemur jólunum en nú má jólaskapið alveg fara að láta sjá sig.
Kláraði seinasta prófið í gær og það gekk svona ágætlega, gekk bara vel þegar ég kom út úr prófinu en eftir því sem ég hugsa meira um það gengur alltaf verr og verr. Ef ég held svona áfram þá verð ég komin niður í 0 þegar ég fæ síðan einkuninna. En vá hvað það er gott að vera búin í þessu. Er nýkomin heim í sveitina en ákvað að henda inn hérna nokkrum orðum til að sanna að ég væri ekki dauð, hef varla talað við nokkrun mann nema skólafélagana síðasta mánuðinn.
En svona í tilefni þess að jólin eru komin og Stærðfræðigreining IC búin þá ætla ég að henda hérna inn einum brandara sem er búinn að skemmta okkur mikið í prófatörninni, sérstaklega um ellefu - tólf á kvöldin þegar að svefngalsinn er farinn að taka völdin.
Einu sinni var stærðfræðiráðstefna og þar var einn prófessorinn að halda fyrirlestur fyrir framan hóp af áhugasömum stærðfræðingum. Inn stekkur nakinn maður með Súpermann-skikkju, bendir á stærðfræðingana og segir "Ég diffra ykkur, ég diffra ykkur". Það verður mikil ringulreið og kaos og stærðfræðingarnir hverfa einn af öðrum þangað til einn stærðfræðingur situr eftir. Nakti maðurinn gengur að honum, bendir á hann og segir ógnvekjandi "Ég diffra þig, ég diffra þig". Maðurinn situr sallarólegur og segir "Nei, þú getur það ekki, ég er e í x-ta".
Tilgangurinn: Ef þú skilur ekki þennan brandara þá er það hið fínasta mál. Ef þú skilur hann þá ertu nokkuð súr.
07nóvember
...já, tók þetta af huga.is eftir að María var búin að benda mér á þetta og ákvað að gera svona. Mér finnst sérstaklega passa vel lagið fyrir Falling in love og Prom :)
Svona gerirðu þetta (copy paste frá ensku, nenni ekki að þýða, ef þið skiljð ekki ensku get ég alveg gert það...):
1. Open your library (iTunes, Winamp, Media Player, iPod, etc)
2. Put it on shuffle
3. Press play
4. For every question, type the song that's playing
5. When you go to a new question, press the next button
6. Don't lie and try to pretend you're cool
Allavega eru þetta mín:
Opening Credits:
Hey There Dililah – Plain White T’s
Waking Up:
Guilty – Youth Group
First Day At School:
Don’t Dream it’s Over – The Hereafter
Falling In Love:
The Frog Prince - Keane
Fight Song:
She’s so High Above me – Fastball
Breaking Up:
Close to me – The Cure
Prom:
Back of your Car – Ryan Star
Life:
You could be Happy – Snow Patrol
Mental Breakdown:
Interstate Love Song – Stone Temple Pilots
Driving:
Rock’N’Roll High School – The Ramones
Flashback:
Celebration – Kool & the Gang
Getting back together:
Love Song – Cary Brothers
Wedding:
Friend of the Devil – Greatful Dead
Birth of Child:
Take me under – Three Days Grace
Final Battle:
Baby, Come Over – Samantha Mumba
Death Scene:
Friday I’m in Love – Ben Gibbard
Funeral Song:
God of Wine – Third Eye Blind
End Credits:
It’s Time to Dance – Panic at the Disco
21október
Hvað er ég að gera með að vera að blogga kl. níu á laugardagsmorgni? Þá eiga allir að vera sofandi. En þar sem að ég er að fara í 20% próf úr skilgreiningum í stærðfræðigreiningu á mánudaginn þá er betra að vera búinn að læra eitthvað fyrir það. Svona as per usual þegar ég á að vera að læra undir próf þá endar maður á því að vafra um vefinn. Var að skoða síður og datt inn á þetta. Síðan eru margar ungar stelpur að svelta sig til að líta út eins og módel.
Jæja, verð að hafa þetta stutt, calculus bíður og má ekki bíða mikið lengur.

Lag dagsins: The Way (Pretty Girl) - Sugarcult
E.S. Tékkið á þessu.
08október
Í gær varð ég vitni að símtali;
Stelpa: Halló, er þetta í Videoheimum?
Maður í síma: -----------
Stelpa: Hérna, ég sko skilaði spólum í lúguna hjá ykkur áðan en sko ég skilaði þeim á vitlausa videoleigu.
Maður í síma: ----------
Stelpa: Já, sko ég leigði þær ekki hjá ykkur og átti þess vegna að skila þeim á aðra leigu.
Maður í síma: ------------------
Stelpa: Má ég þá koma að ná í þær?
Maður í síma: ----------------
Stelpa: Ha, má ég ekki ná í þær?
Maður í síma: ----------------
Stelpa: Oki, ég flýti mér þá. Bless.
Maður í síma: ----------------
Stelpa:

Lag dagsins: She Moves in Her Own Way - The Kooks
Quote : Söknuður er sárs líkan. Erla Sif.
06október
Jæja, nú er vikan að verða búin að helgin að byrja. Vísindaferð á morgun í Vífilfell. Þórsmörk var bara æðisleg í alla staði, þrátt fyrir að hamborgararnir hefðu gleymst í Reykjavík þannig að við vorum með pylsur, pylsubrauð og hamborgarabrauð en enga hamborgara. Það reddaðist allt, fengum bara gúllas til að setja inn í hamborgarabrauðin. Annars fórum við í hópefli, röltum um svæðið, fótbolti HÍ vs. Pólland, étið og farið í pottinn.
Vikan er búin að fara í að læra og vera í skólanum, sleppti reyndar heimalærdóminum í gær og fór á kaffihús með mömmu og Tollu. Mamma var í bænum í gær og pabbi kom í morgun, skötuhjúin voru nefninlega að skreppa til Tenerife í tvær vikur. Heyrði í þeim áðan og þá voru þau að rölta um bæinn. Maður hefði nú ekkert á móti því að vera að spóka sig um í sólinni.
Já, og svo fór maður á Zidane; Portrait núna í kvöld. Sérstök mynd, sérstök mynd.
Svo er
þetta náttúrulega bara snilld, spurning um að vera niðri í bæ alla helgina, tek bara efnafræðina með mér þangað.

Lag dagsins: America - Razorlight
One doesn't discover new lands without consenting to lose sight of the shore for a very long time. - Andre Gide-
30september
Þetta lag er búið að vera fast í hausnum á mér síðan ég heyrði það fyrst í byrjun september. Ætla bara að deila
þessu með ykkur og reyna að festa þetta inn í heilann á ykkur líka!
Farin í Þórsmörk, var löt að læra framan af í gær en var síðan alveg að frá klukkan hálf tólf í gærkvöldi til þrjú í nótt! Útreikningarnir allir búnir og vonandi bara smáræði sem er eftir.